Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Það gekk vel í 2. umferð í gær. Strákanir unnu allir en Iðunn tapaði. Benedikt lagði að velli Indverjann Alankar Sawai Vandan (2288) sem er afar gott enda Indverjar heimsþekktir fyrir að vera allt of stigalágir.
Benedikt hefur 2 vinninga, Ingvar Wu 1½, Adam 1 en Iðunn er ekki komin á blaðið góða.
Benedikt mætir tékkneska FIDE-meistaranum Vit Vilimek (2209) í 3. umferð í dag. Ingvar mætir svo engum öðrum en hinum kunna króatíska stórmeistara Bogdan Lalic (2297). Báðir verða þeir í beinni.
Benedikt og Ingvar Wu í beinni
- Auglýsing -
















