Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á eyjunni La Palma (ekki Tenerife eins og ranglega var haldið fram í frétt gærdagsins) á Kanaríeyjum þessa dagana. Hann gerði jafntefli í 2. umferð sem fram fór í gær við spænsku skákkonuna Carla Christina Sosa Suarez (2119). Hann hefur 1½ vinning.

Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 9
Hannes í beinni frá þriðju umferð
Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.
- Auglýsing -

















