Níu íslenskir keppendur taka þátt í mótinu. Það er óhætt að segja að þeir hafa byrjað prýðilega. Vignir Vatnar Stefánsson (2529) vann sína fjórðu skák í röð á mótinu (og sjöundu í heild ef við teljum síðasta mót með) og hefur fullt hús!

Hann vann serbnseska FIDE-meistarann Boris Stankovic (2304) í gær. Hilmir Freyr Heimisson (2338) og Oliver Aron Jóhannesson (2262) hafa 3½ eftir jafntefli í innbyrðis skák. Alexander Oliver Mai (2164) hefur 3 vinninga.

Vignir, Hilmir, Oliver og Alexander í beinni frá fimmtu umferð

Úrslit síðustu umferðar og pörun næstu umferðar (hófst kl. 8)

Alls taka þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir er stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn er 15 í stigaröð keppenda og Oliver nr. 18.

Split Open fer fram í Króatíu dagana 6.-14. ágúst. 10 umferðir á 9 dögum (einn frídagur).

- Auglýsing -