Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brugge í Belgíu. Björn Freyr Björnsson (2126) tekur þátt í flokki 50+.
Fjórða umferð fór fram í a-flokki í gær. Omar Salama vann sína skák gegn hollenska skákmeistaranum Tim Peters (2048) en Jósef tapaði fyrir hollenska alþjóðlega meistaranum Merijn Van Delft (2359). Bræðurnir Björn Freyr og Sverrir Örn tóku hálfs vinnings yfirsetu í gær.
Omar hefur 3 vinninga. Sverrir Örn og Jósef hafa 2 vinninga.
Tvær umferðir eru tefldar í dag.
Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum
——————-
Í flokki 50 ára og eldri eru engir tvöfaldar dagar og tefldar sjö umferðir Björn er fjórði stigaröð keppenda.
Björn Freyr tók hálfs vinnings yfirsetu í gær og hefur 2½ vinning eftir þrjár umferðir.
——————-
















