Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Strákarnir gerði allir jafntefli í fjórðu umferð í gær. Benedikt heldur áfram að eiga frábært mót og gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Rudolf Jun (2345). Iðunn tapaði.
Benedikt hefur 2½ vinning, Ingvar Wu og Adam hafa 2 vinning og Iðunn hefur 1 vinning.
Fimmta umferð fram í dag og hefst kl. 14:15. Benedikt verður í beinni gegn tékkneska FIDE-meistaranum Dominik Svadlenka (2208).
Benedikt í beinni frá fimmtu umferð
- Auglýsing -

















