Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum þessa dagana. Hannes gerði jafntefli í báðum skákum gærdagsins.
Hannes hefur 5 vinninga eftir sjö umferðir og er í skiptu fimmta sæti.
Áttunda umferð af tíu fer fram í dag.
Hannes í beinni frá áttundu umferð
Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.
- Auglýsing -














