Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brugge í Belgíu. Björn Freyr Björnsson (2126) tekur þátt í flokki 50+.
Fimmta og sjötta umferð fóru fram í a-flokki gær. Jósef og Sverir fengu einn vinning hvor. Omar Salama er hættur á mótinu. Sverrir Örn og Jósef hafa 3 vinninga.
Sjöunda umferð af níu fer fram í dag.
Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum
——————-
Í flokki 50 ára og eldri eru engir tvöfaldar dagar og tefldar sjö umferðir Björn er fjórði stigaröð keppenda.
Björn Freyr gerði jafntefli í fjórðu umferð og hefur 3 vinninga. Hann tekur yfirsetu í fimmtu umferð
——————-
















