Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Adam og Iðunn unnu í gær en Benedikt og Ingvar Wu gerðu jafntefli. Benedikt með enn ein góð úrslitin. Að þessu sinni jafntefli við tékkneska FIDE-meistaranum Dominik Svadlenka (2208).
Benedikt og Adam hafa 3 vinninga, Ingvar Wu hefur 2½ vinning og Iðunn hefur 2 vinninga.
Enginn Íslendingur verður í beinni í dag.
- Auglýsing -















