Níu íslenskir keppendur taka þátt á alþjóðlega mótinu í Split í Króatíu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánssnon (2529) er á toppnum með 6½ vinning að lokinni sjöundu umferð sem fram fór í gær. Vel gekk frá flestum Íslendinganna í gær.
Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2338) er næstefstur íslensku keppendanna með 5½ vinning og er í skiptu öðru sæti. Hann mætir Vigni í umferð dagsins. Oliver Aron hefur 5 vinninga og Alexander Oliver hefur 4½ vinning.
Áttaunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 15:10.

Vignir, Hilmir, Oliver og Alexander verða í beinni í dag.
Tengill á beina útsendingu áttundu umferðar.
Alls taka þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir er stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn er 15 í stigaröð keppenda og Oliver nr. 18.
Split Open fer fram í Króatíu dagana 6.-14. ágúst. 10 umferðir á 9 dögum (einn frídagur).














