Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum þessa dagana. Í gær vann hann spænska FIDE-meistarann Marcos Adrian Perez Felipe (2143).
Hannes hefur 6 vinninga eftir átta umferðir og er í skiptu þriðja sæti. Vinningi á eftir efstu mönnum.
Níunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og hefst kl. 16. Hannes mætir þá franska alþjóðlega meistaranum Mathieu Phileas (2404). Sigur í dag setur hann í afar góða stöðu fyrir lokaumfeðrina.
Hannes í beinni frá níundu umferð
Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.












