Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brugge í Belgíu. Björn Freyr Björnsson (2126) tekur þátt í flokki 50+.
Sjöunda umferð fór fram í a-flokki í gær og 5. umferð í 50+ flokki. Allir aðrir en Jósef, sem gerði jafntefli, hvíldu.
Næstsíðasta umferð í báðum flokki fer fram í dag.
Jósef hefur 4 vinning og Sverrir Örn 3½ vinning. Omar hefur lokið þátttöku á mótinu.
Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum
——————-
Í flokki 50 ára og eldri eru engir tvöfaldar dagar og tefldar sjö umferðir. Björn er fjórði stigaröð keppenda.
Björn Freyr sat yfir í gær. Hann hefur 3½ vinning og er í skiptu fimmta sæti. Gæti blandað sér í toppbaráttuna með góðum úrslitum í lokaumferðunum.
——————-














