Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Sjötta umferð fór fram í gær. Benedikt vann, Adam og Iðunn gerðu jafntefli en Ingvar Wu tapaði.
Benedikt hefur 4 vinninga, Adam hefur 3½ vinning, Ingvar Wu og Iðunn hafa 2½ vinning
Sjöunda umferð hefst kl. 14:15. Benedikt og Adam verða báðir í beinni
Benedikt og Adam í beinni frá sjöundu umferð
- Auglýsing -














