Eiður, Pétur og Emil.

Ágústmót barna hjá TR fór fram á laugardaginn og allir sáttir við að taka daginn snemma. Mótið hófst 10:30 og lauk 12:37, sem hentar vel þegar amma er með vöfflukaffi klukkan 13.

20 börn tóku þátt, 13 í eldri flokki sem tefldu sjö umferðir og átta í yngri flokki sem tefldu líka sjö umferðir, allir við alla.

Pétur Úlfar Ernisson vann eldri flokkinn örugglega, með fullu húsi. Í öðru sæti varð Emil Finnsson Fenger með fimm vinninga, og þriðji varð Eiður Jökulsson með 4½ vinning.

Mótið á Chess-results.

Jón Fenrir Ragnarsson vann yngri flokkin en hann varð jafn að vinningum ásamt Nóa Ingvaldssyni, báðir með sex vinninga. Þriðji varð Tauras Nareika með fimm vinninga.

Mótið á Chess-results.

Tauras, Jón og Nói.

Nú er þessum mótum lokið í bili, sem haldin voru til að hafa stutt hraðskákmót í boði yfir sumartímann í Taflfélaginu.

Tómas Tandri tók myndir, sjá hér:

_D0A5396

- Auglýsing -