Níu íslenskir keppendur tótu þátt á alþjóðlega mótinu í Split í Króatíu sem fram fór 6.-14. ágúst.
Lokaumferðin
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2529) átti frábært mót og fékk 8½ vinning í umferðunum tíu. Endaði með vinningi fyrir ofan næstu menn. Frammistaða hans samsvaraði 2577 skákstigum og hækkaði hann um 8 stig fyrir hana. Hilmir Freyr Heimisson (2338) og Oliver Aron Jóhannesson (2262) áttu einnig gott mót og hækka báðir á stigum.
Röð efstu manna

Árangur Íslendinganna varð annars sem hér segir
Alls tóku þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir var stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn var nr. 15 í stigaröð keppenda og Oliver var nr. 18.
- Auglýsing -















