Sverrir Örn, Omar, Jósef og Björn Freyr

Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sátu að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brugge í Belgíu sem fram fór 8.-14. ágúst Björn Freyr Björnsson (2126) tók þátt í flokki 50+.

Svo fór að allir gerðu jafntefli í lokaumferðinni.

Jósef stóð sig afar vel og hækkar um 33 stig fyrir frammistöðu sína.

Alls tóku þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir voru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -