Fjórir ungir Íslendingar tóku þátt í Summer Prague Open sem fram fór 7.-15. ágúst. Þar voru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Benedikt stóð sig best ungmenninna. Hlaut 5½ í umferðunum níu og hækkar um heil 52 stig! Adam fékk 5 vinninga og Ingvar Wu og Iðunn enduðu með 4½ vinning.
- Auglýsing -













