Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) vann sigur í lokaumferð alþjóðlega mótsins sem fram fór í La Palma á Kanaríeyjum. Hannes hlaut 7½ í umferðunum tíu.
Hannes vann fimm skákir en gerði jafnmörg jafntefli. Árangur hans samsvaraði 2412 skákstigum og hækkar hann um 4 skákstig fyrir frammistöðuna.
Hannes endaði í 3.-7. sæti – nánar tiltekið í því fimmta eftir oddastigaútreikning.
Hannes var nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda voru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur var Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582).
- Auglýsing -
















