Ingvar Þór og Björn 'Ivar

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30.

Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com.

Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum.

Mótsstig Chess.com gildir séu menn jafnir að vinningum. Ef Chess.com styttir mótið v/fjölda þátttakanda þá gildir sú stytting. Í stuttu máli sagt – allar reglur Chess.com gilda.

Það er nauðsynlegt að skrá rétt nafn í skráningarformið til að eiga möguleika að fá sæti í úrslitunum. Þeir sem hafa þegar keppnisrétt í úrslitunum mega ekki tefla í undanrásunum. 

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.

Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Sjálf 16 manna úrslitin hefjast 30. ágúst.

Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.

  1. Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2026 (varamenn úr undanrásunum núna)
  2. Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1. ágúst 2026 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
  3. Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 25. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
  4. Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 25. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 15. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 125.000 kr.
  2.   75.000 kr.
  3.   25.000 kr.
  4.   25.000 kr.

Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.

Dagskrá

Dags. Vikudagur Netskák
30-Aug-2026 Sunday Netskák (16)
6-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
13-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
27-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
4-Oct-2026 Sunday Netskák (8)
25-Oct-2026 Sunday Netskák (8)
1-Nov-2026 Sunday Netskák (4)
15-Nov-2026 Sunday Netskák (2)

 

Eftirtaldir hafa keppnisrétt

Hvernig
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson Átta manna
2 IM Björn Þorfinnsson Átta manna
3 FM Ingvar Þór Jóhannesson Átta manna
4 FM Jón Kristinn Þorgeirsson Átta manna
5 IM Dagur Ragnarsson Átta manna
6 FM Símon Þórhallsson Átta manna
7 FM Bárður Örn Birkisson Átta manna
8 IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson Átta manna
9 GM Hannes Hlífar Stefánsson Skákstig
10 IM Hilmir Freyr Heimisson Skákstig
11 GM Jóhann Hjartarson Skákstig
12 Undanrásir Undanrásir
13 Undanrásir Undanrásir
14 Undanrásir Undanrásir
15 Undanrásir Undanrásir
16 Kona Kona-undanrásir
- Auglýsing -