Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi.

Sasha byrjaði ekki vel og var með 1½ eftir fjórar umferðir. Í gær var tvöfaldur dagur og þá gekk allt upp og Sasha vann báðar skákirnar.

Aleksandr hefur 3½ eftir sex umferðir. Sjöunda umferð fer fram í dag.

Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -