Friðrik Ólafsson. Goðsögn.

Skáksamband Íslands og Taflfélag Reykjavíkur halda Minningarmót Friðriks Ólafssonar sem  24.–29. nóvember nk. Mótið er tileinkað minningu fyrsta íslenska stórmeistarans, sem lést 4. apríl 2025, níræður að aldri. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur.

Friðrik Ólafsson (26. janúar 1935 – 4. apríl 2025) var ekki aðeins fyrsti Íslendingurinn til að hljóta stórmeistaratitilinn árið 1958 heldur einnig sexfaldur Íslandsmeistari, tvöfaldur Norðurlandameistari og forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) árin 1978–1982. Hann á gríðarlegan þátt að sterkri skákmenningu á Íslandi, meðal annars með því að ryðja brautina fyrir heimsmeistaraeinvígið 1972. Friðrik var bæði heiðursfélagi TR og SÍ.

Mótið verður alþjóðlegt opið mót opið fyrir alla sem hafa meira en 2000. Það dugar að hafa náð því einhvern tíma á árinu. Einnig geta skákmenn undir 2000 skákstigum sótt um undanþágu en mótshaldarar áskilja sér rétt til þess.

Tefldar verða níu umferðir á sex dögum.

Þátttökugjöld eru €150. Frítt fyrir GM/WGM/IM/WIM. FIDE-meistarar fá 50% afslátt.

Verðlaun

Ert þú í mótahugleiðingum?

- Auglýsing -