(Mynd: Thor Kvakkestad)

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi.

Eftir skrykkjóta byrjun er Sasha kominn í stuð og vann sína þriðju skák í röð í sjöundu umferð í gær.

 

Aleksandr hefur 4½ vinning og er í 10.-21. sæti. Í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer í dag mætir hann sterkum alþjóðlegum meistara (2484) sem er stigahæsti keppandi mótsins.

Í flokki Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -