WFM Guðrún Fanney Briem (1816) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki.
Í fyrstu umferð sem fram fór í gær gerði hún jafntefli við franska skákkonu sem er mun stigahærri en Guðrún.

Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og þar af fimm stórmeistarar. Guðrún er næststigalægst keppenda en hún er auðvitað mun betri en stigin gefa til kynna. Mótið fer fram 21.-29. ágúst. Ein umferð á dag. Gamli skólinn.
- Auglýsing -



















