Hilmir hefur teflt hraustlega á mótinu

Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli á alþjóðlegu móti í Barcelona á Spáni.

Hann gerði jafntefli við alþjóðlegan meistara kvenna í gær og hefur 1½ vinning eftir tvær umferðir. Þriðja umferð fer fram í dag.

Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -