Skákskóli Íslands stendur fyrir skáknámskeiði fyrir fullorðna í október.
Námskeiðið er opið öllum 20 ára og eldri, en gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi náð að minnsta kosti um 1800 skákstigum til þess að geta tekið þátt.
Námskeiðið verður í formi fyrirlestra og æfinga, þar sem lögð verður áhersla á hagnýta þætti skákarinnar.
Tekin verða fyrir dæmi um mismunandi peðastöður og áætlanagerð, undirbúning í byrjunum, hagnýt endatöfl, nýtingu tölvutækninnar og fleira.
Kennt verður kl. 19:30 öll þriðjudagskvöld og má gera ráð fyrir að hver kennslustund taki allt að tveimur klukkustundum.
Kennarar á námskeiðinu verða stórmeistarar og annað afreksfólk í skák.
Námskeiðið fer fram í kennslusal Skákskólans, Faxafeni 12.
Dagskrá:
- 6. október kl. 19:30
-
13. október kl. 19:30
-
20. október kl. 19:30
-
27. október kl. 19:30
Þátttökugjald: 16.000 kr.
Nauðsynlegt er að að minnsta kosti tíu þátttakendur skrái sig til þess að námskeiðið fari fram.
Nánari upplýsingar veitir Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands, bjorn@skaksamband.is
- Auglýsing -

















