Meistaramót Skákskóla Íslands – Ungmennameistaramót Íslands (17-22 ára) fer fram 2.-4. október.
Teflt verður í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Mótið er bæði Íslandsmót ungmenna á aldrinum 17-22 ára en jafnframt Meistaramót Skákskóla Íslands.
Þátttökurétt hafa:
– Þau ungmenni sem tekið hafa þátt í námskeiðum og annarri starfsemi Skákskólans
– Ungmenni á aldrinum 17-22 ára (fædd 2004-2009)
– Verðlaunahafar í flokkum U12, U14 og U16 á Íslandsmóti ungmenna árið 2025
Teflt verður um sæmdarheitin Meistari Skákskóla Íslands 2026 og Ungmennameistari Íslands 2026.
Meistari Skákskóla Íslands getur einungis orðið keppandi sem er fæddur árið 2006 eða síðar (20 ára og yngri).
Dagskrá:
1.-4. umferð kl. 17:00-20:00 föstudaginn 2. október (atskákir, 15+5)
5. umferð kl. 11:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
6. umferð kl. 17:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
7. umferð kl. 11:00 sunnudaginn 4. október (kappskák, 90+30)
Í fyrstu fjórum umferðunum verða tímamörk:
15+5, 15 mínútur á alla skákina auk 5 sekúndna sem bætast við við hvern leik.
Í umferðum 5-7 verða tímamörk:
90+30, 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við við hvern leik.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Þátttökugjöld:
– Skráðir nemendur Skákskólans á haustönn 2026: Ókeypis
– Aðrir keppendur: 3.000 kr.
Verðlaun:
1. sæti: Ferðakostnaður á skákmót að verðmæti 50 þúsund kr.
2. sæti: Ferðakostnaður á skákmót að verðmæti 30 þúsund kr.
3.sæti: Úttekt hjá Chessable, 15.000 kr.
Efsti keppandi 17-22 ára hlýtur titilinn Ungmennameistari Íslands, keppnisrétt í Meistaraflokki Skákþings Íslands 2027 og veglegan verðlaunagrip.
Efsti keppandi 20 ára og yngri hlýtur sæmdarheitið Meistari Skákskóla Íslands 2026 og veglegan verðlaunagrip.
Veitt verða aukaverðlaun fyrir bestan árangur miðað við eigin skákstig.
Verði keppendur jafnir að vinningum skal teflt, með styttri tímamörkum, um titlana Ungmennameistari Íslands og Meistari Skákskóla Íslands.
Mótsstig eru látin gilda um önnur sæti.
Mótsstig:
1. Buchholz -1
2. Bucholz
3. Sonneborn Berger
4. Innbyrðis viðureign
Miðað er við að einungis sé hægt að vinna til einna verðlauna, utan titlanna.
Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu.
Núverandi Ungmennameistari Íslands er Vignir Vatnar Stefánsson og núverandi meistari Skákskóla Íslands er Sigurbjörn Hermannsson.

















