Afreksleið Skákskóla Íslands er ætlað að koma til móts við þau ungmenni sem eru í fremstu röð.

Afreksleiðin er einungis ætluð þeim ungmennum, 20 ára og yngri, sem eru yfir afreks- eða heimsafreksmörkum Skáksambands Íslands í sínum aldursflokki. (Sjá töflu, síðast uppfærð 21. maí 2026)

Tafla sem sýnir afreksmörk Skáksambands Íslands

Þau ungmenni sem taka þátt í Afreksleiðinni fá aðgang að sérhæfðum verkefnum sem taka mið af þeirra markmiðum og þörfum.

Meðal þess sem boðið er upp á:

  • Æfingaskákir gegn sterkum andstæðingum
  • Aðstoð við markmiðssetningu
  • Aðstoð við gerð æfingaáætlunar
  • Aðstoð við sjálfstæð vinnubrögð
  • Aðgangur að æfingaðstöðu og tækjakosti Skákskólans
  • Ráðgjöf við val á skákmótum

Fyrirspurnum svarar Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands
bjorn@skaksamband.is

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn