Þriðja umferð var tefld í dag á EM taflfélaga í Búdva í Svartfjallalandi. A-sveit Breiðabliks fór fyrir íslensku liðunum en heilt yfir náðust fínustu úrslit en bæði b-sveit Breiðabliks og sveit Akureyringa náðu í prýðisgóð úrslit gegn stigahærri sveitum í umferðinni!

Breiðablik A – SK Rockaden 2 6–0

Stórglæsileg frammistaða hjá A-liði Breiðabliks sem vann allar sex skákirnar gegn b-liði sænska klúbbsins Rockaden. Stórt að missa ekkert niður þó svo að Blikar hafi verið stigahærri á öllum borðum. Hilmir Freyr mátaði með biskup og riddara í vel yfir 150 leikjum!

Borð Breiðablik A Úrslit SK Rockaden 2
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) 1–0 FM Leo Crevatin (2218)
2 IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) 1–0 Vladan Nikolic (2224)
3 FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) 1–0 Lukas Willstedt (2183)
4 FM Bárður Örn Birkisson (2264) 1–0 Nils Bergman (2134)
5 CM Benedikt Briem (2239) 1–0 Filip Jonsson (2089)
6 CM Björn Hólm Birkisson (2234) 1–0 Sanna Eriksson (1870)

Lokatölur: Breiðablik A 6–0 SK Rockaden 2

 

MTK Budapest 2 – Breiðablik B 2½–3½

B-lið Breiðabliks vann afar góðan sigur á MTK Budapest 2. Stephan Briem og Birkir Hallmundarson unnu sínar skákir, þrjár skákir enduðu með jafntefli og það dugði til 3½–2½ sigurs. Glæsileg úrslit hjá b-sveit Blika sem hefur sýnt með úrslitum í síðustu tveimur umferðum að þeir eiga vel heima á þessu móti!

Borð MTK Budapest 2 Úrslit Breiðablik B
1 FM Lazar Matyassy (2337) 0–1 Stephan Briem (2154)
2 FM Barnabas Kovacsy (2281) ½–½ Arnar Milutin Heiðarsson (2104)
3 WIM Zsuzsanna Terbe (2152) ½–½ Davíð Kolka (2043)
4 WFM Lili Toth (2102) 1–0 Markus Orri Jóhannsson (1982)
5 Balint Virag (2186) 0–1 Birkir Hallmundarson (1888)
6 Balazs Fodor (2213) ½–½ WFM Guðrún Fanney Briem (1927)

Lokatölur: MTK Budapest 2 2½–3½ Breiðablik B

 

Akureyri – Perfect 3–3

Akureyringar náðu sterku 3–3 jafntefli gegn stigahærra liði Perfect. Áskell Örn Kárason og Bogi Pálsson unnu á tveimur neðstu borðunum, en Magnús P. Örnólfsson og Stefan Steingrímur Bergsson gerðu jafntefli. Flestar vinningsskákir Akureyringa komu fyrst í hús og því stefndi á tímabili í magnaðan sigur! Moldóvaranir náðu „perfect“ lokaspretti og redduðu jafnteflinu, rétt svo!

Skákirnar voru ekki beint en ritstjórn Skak.is varð vitni af afgerandi taflmennsku Boga Pálssonar sem leitaði meðvitað eða ómeðvitað í hugmyndabanka Lenku Ptacnikovu sem notaði sömu hugmynd og Bogi með Da5+ til að refsa lélegri Colle-Zukertort uppstillingu hvíts!

Borð Akureyri Úrslit Perfect
1 FM Rúnar Sigurpálsson (2251) 0–1 GM Vladimir Hamitevici (2462)
2 CM Magnús P. Örnólfsson (2143) ½–½ GM Viktor Komliakov (2372)
3 Gauti Páll Jónsson (2121) 0–1 IM Valery Atlas (2387)
4 Stefan Steingrímur Bergsson (2114) ½–½ Victor Kurochkin (2356)
5 IM Áskell Örn Kárason (2135) 1–0 Gennadie Slavin (2201)
6 Bogi Pálsson (2094) 1–0 Mikhail Pleshkov (2046)

Lokatölur: Akureyri 3–3 Perfect

 

Víkingur – Multi Essence 1–5

Víkingar fengu erfiða andstæðinga frá Norður-Makedóníu og töpuðu 1–5. Sigurbjörn Hermannsson sá um eina vinning Víkinga með sigri á sjötta borði.

Borð Víkingur Úrslit Multi Essence
1 IM Tapani Sammalvuo (2363) 0–1 IM Emil Risteski (2431)
2 FM Páll A. Þórarinsson (2172) 0–1 IM Filip Pancevski (2432)
3 CM Jón Árni Halldórsson (2037) 0–1 IM Toni Lazov (2387)
4 CM Gunnar Rúnarsson (2001) 0–1 Mihail Jordanov (2264)
5 Halldór Pálsson (1991) 0–1 Mateo Eftovski (2093)
6 Sigurbjörn Hermannsson (1917) 1–0 Stojan Velkoski (2054)

Lokatölur: Víkingur 1–5 Multi Essence

Björn Þorfinnsson átti ágætis sénsa í sinni skák gegn Sarana en lið hans Cheddleton varð að lúta í dúk gegn einni af sterkustu sveitum mótsins. Richard Pert náði mögnuðum úrslitum gegn Jorden van Forrest!

Björn taldi sig á köflum hafa mun betri færi en hann hafði en hann var vissulega vel inni í skákinni framan af!

Ásta Kristbjörnsdóttir tapaði sinni skák með b-sveit bresku ljónynjanna en FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson reyndist hetja Kingston Kings og tryggði þeim sigur með minnsta mun með því að vinna síðustu skák viðureignarinnar eftir tvísýna baráttu!

Blikar mæta Zuid-Limburg í 4. umferð, tefla niður fyrir sig, og ættu með góðu að vinna þá viðureign! Breiðablik-b, Akureyri og Víkingar fá öll mjög erfiða andstæðinga og verður við ramman reip að draga!

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn