Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 31 október á Aflagranda 40.
Húsið opnar kl. 13:00, en mótið sjálft byrjar klukkan 14:00.
Settur verður upp minningarveggur eins og áður, með ýmsum myndum af Hrafni Jökulssyni.
Barmerki verða handa þeim sem vilja styrkja Minningarsjóðinn.
Verðlaunapeningar koma frá ÍsSpor og veitingar koma frá Bakarameistaranum og þakkar Vinaskákfélagið þeim sérstaklega fyrir.
Tefldar verða 9 umf., með 3 mín. + 2 sek.
Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.
Þátttökugjald á mótið er 1.500 kr., fyrir fullorðna, en frítt fyrir unglinga undir 16 ára og einnig fyrir meðlimi Vinaskákfélagsins.
Glæsileg verðlaun verða á mótinu:
- sæti: Gull verðlaunapen. + 20,000 kr. (Fær áritað nafn sitt á glæsilega Hrafnsstyttu úr bronsi).
- sæti: Silfur verðlaunapen. + 15,000 kr.
- sæti. Bronse verðlaunapen. 10,000 kr.
50 ára og eldri: Gull verðlaunapen.
Kvennaverðlaun: Gull verðlaunapen.
16 ára og yngri: Gull verðlaunapen.
Skráið ykkur sem fyrst!
Þegar skráðir menn: Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 2026
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Allir velkomnir.
Gens una sumus – Við erum ein fjölskylda!
Skráning er á heimasíðu félagsins: Minningarskákmót Hrafns Jökulssonar 31 okt. 2026















