Skákþing Garðabæjar 2026 hefst föstudaginn 30. október
Mótsstaður: Miðgarður íþróttahús Vetrarmýri 18. 3. hæð. Garðabæ.
Umferðatafla:
- – 4. umf. Föstudaginn 30. október kl. 18:30
5. umf. Laugardaginn 31. október. kl. 10:00
6. umf. Laugardaginn 31. október kl. 14:00
7. umf. Sunnudaginn 1. nóvember kl. 13:00
Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram fyrri hluta nóvember.
Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Aðalskákstjóri er Páll Sigurðsson.
upplýsingar tg@tafl.is
Tímamörk í umferðum 1-4 eru atskákir með umhugsun 15 mínútur og 5 sek á mann en í umferðum 5-7 60 mínútur + 30 sek á leik.
Mótið er opið öllum sem hafa 2399 skákstig eða minna. 2 hjásetur gegn hálfum vinning eru leyfðar fram í 5. umferð.
Verðlaun auk verðlaunagripa:
Verðlaun. 1. sæti 50 þús. 2 sæti 25 þús, 3. sæti 10 þús. Skipt eftir Hort Kerfinu.
Aukaverðlaun (skiptast ekki og hver fær bara ein verðlaun)
Skákmeistari Garðabæjar 15 þús.
Efsta skákkona 15 þús.
Efsti TG ingur 15. þús.
Efsti skákmaður í hverjum 8 manna flokki utan stigahæstu manna (5-8) 15. þús.
Röð mótsstiga (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. fjöldi tefldra skáka 5. Sonnenborn-Berger.
Mótið er um leið Skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).
Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.
Þátttökugjöld:
Félagsmenn Fullorðnir 3000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Aðrir. Fullorðnir 5000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 3000 kr
IM/WIM og GM/WGM greiða ekki þátttökugjöld. Skákmeistari Garðabæjar 2025 er alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinsson og Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar árið 2025 er Lenka Ptacnikova stórmeistari kvenna.















