
Chess.com stendur fyrir fyrstu beinu umræðu frambjóðenda um forsetaembætti FIDE í dag, miðvikudaginn 9. september. Þrír frambjóðendur taka þátt: Jan Henric Buettner, Wadim Rosenstein og Timur Turlov.
Umræðan hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og er áætluð um 90 mínútur. Stórmeistarinn Maurice Ashley stýrir umræðunni. Kappræðurnar eru í beinni á YouTube- og Twitch-rásum Chess.com.
Kosningin fer fram 26. september á aðalfundi FIDE í Samarkand í Úsbekistan, samhliða Ólympíuskákmótinu. Forseti FIDE er ekki kjörinn í almennum kosningum heldur af aðildarsamböndum FIDE. Hvert aðildarsamband hefur eitt atkvæði, óháð stærð. Atkvæði Íslands hefur því sama vægi og atkvæði Indlands.
Frambjóðendur bjóða sig fram í ásamt varaforsetaefni. Frambjóðendur eru:
- Jan Henric Buettner og Malcolm Pein
- Wadim Rosenstein og Gordon Tang
- Timur Turlov og Viswanathan Anand
Hvert framboð þarf meira en helming gildra atkvæða til að sigra. Ef engin nær meirahluta fara þau tvö framboð sem flest atkvæði fá í úrslitakosningu.
Um 202 aðildarsambönd með kosningarétt (Rússland og Rúanda eru í banni).
Frambjóðendurnir í stuttu máli
Jan Henric Buettner, fæddur 1964 í Hamborg, er þýskur athafnamaður og fjárfestir. Hann er meðal annars meðstofnandi Freestyle Chess. Áherslur hans snúast um auknar tekjur, styrki, fjölmiðla, gagnsæi og meira fé til landssambanda. Varaforsetaefni hans er Malcolm Pein, enskur skákmótaskipuleggjandi og stofnandi London Chess Classic.
Wadim Rosenstein, fæddur 1990, er þýskur ríkisborgari og formaður WR Group. Hann hefur staðið að WR Chess-mótum og er FIDE-fulltrúi Þýska skáksambandsins. Hann talar fyrir nútímavæðingu FIDE, sterkari rekstri og betri þjónustu við aðildarsambönd. Varaforsetaefni hans er Gordon Tang.
Timur Turlov, fæddur 1987 í Moskvu, flutti til Kasakstan 2011 og sagði af sér rússneskum ríkisborgararétti 2022. Hann er forstjóri Freedom Holding Corp., forseti Kasakstanska skáksambandsins og forseti International School Chess Federation. Hann leggur áherslu á stafræna þróun, fjárhagslegan styrk, skák í skólum og aukið vægi svæða utan hefðbundinna skákmiðstöðva. Varaforsetaefni hans er fimmfaldur heimsmeistari Viswanathan Anand, sem nú er starfandi forseti FIDE.
Nánar
- Chess.com-grein og upplýsingar: chess.com/news/…/how-to-watch-fide-presidential-debate-2026
- Beinn tengill Chess.com: go.chess.com/FIDE_Debate
- YouTube: youtube.com/@Chesscom
- Twitch: twitch.tv/chess


















