Katrín Ósk Tómasardóttir vann eldri flokk barnaskákmóts KR laugardaginn 19.
september með 6 vinninga af 7 mögulegum. Í öðru sæti varð Anh Hai Tran einnig
með 6 vinninga en með lægri oddastig (hann tapaði fyrir Katrínu). Eiður Jökulsson og
Jónatan Leó Daðason fengu báðir 5 ½ vinning en Eiður varð ofar á oddastigum og
hreppti 3. sætið. Í eldri flokki tefldu 44 keppendur og voru 25 af þeim með elóstig. Til
samanburðar má nefna að í fyrsta barnaskákmóti KR í mars 2025 þá voru 5
keppendur með elóstig.


Jón Fenrir Ragnarsson vann yngri flokkinn með 7 vinninga í 7 skákum. Í öðru sæti
varð bekkjarbróðir hans úr Vesturbæjarskóla Taurus Nareika með 6 vinninga. Þrír
keppendur voru svo með 5 ½ vinning: Jakob Heiðar Rist Daðason, Múli Björgvin
Marteinsson og Aniruddh Pydimarri. Eftir oddastigaútreikning lenti Jakob í 3. sæti,
Múlí í 4. sæti og Aniruddh í 5. sæti. Árangur Aniruddh er athyglisverður því hann er 6
ára og í fyrsta bekk en allir þeir sem urðu fyrir ofan hann eru í 3. bekk. Í yngri
flokknum tóku 23 keppendur þátt.


Samtals voru þátttakendur 64 sem nokkuð gott á fyrsta móti vetrarins. Katrín Ósk
hefur áður borið sigur úr bítum í þessum mótum en Jón Fenrir náði í sinn fyrsta sigur.
KR-ingar þakka öllum keppendum, sem voru sér og sínum til sóma, fyrir þátttökuna
og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti í október. Nánari upplýsingar um öll úrslit
eru hér fyrir neðan:

KR barnaskákmót september 2026- yngri flokkur
KR barnaskákmót september 2026- eldri flokkur

- Auglýsing -