Önnur umferð Evrópumóts ungmenna í skák fór fram í dag á Krít.
Helgi Fannar, Dagur, Pétur, Haukur og Markús Orri unnu sínar skákir en aðrir töpuðu.
Helgi Fannar bætti um betur frá því í fyrstu umferð, notaði tímann sinn vel í dag og setti góða pressu á andstæðing sinn, Lars Tomsic frá Slóveníu. Helgi hafði hættulegt frípeð á d-línunni sem svartur þurfti að hafa sig allan við að stöðva. Á sama tíma fór Helgi að setja pressu á kóngsvængnum.
Sá slóvenski missti af bestu leiðinni í vörninni og þá varð eitthvað að láta undan á kóngsvængnum. Góður sigur hjá Helga.
25. Df3! og svartur ræður ekki við hótanir hvíts.
Dagur hafði hvítt gegn heimamanninum Mamoulakis.
Dagur tefldi skoska bragðið og í flækjunum missti sá gríski öll tök á svörtu reitunum. Dagur vann lið með skemmtilegri brellu og innbyrti sigurinn af öryggi. Góður dagur hjá Degi.
15. e5! og allar flóðgáttir opnast!
Pétur Úlfar hafði svart gegn einum af stigahæstu keppendum síns flokks, U12, Junyi Zhang (2144) frá Englandi. Upp kom drekaafbrigðið og voru báðir keppendur öllum hnútum kunnugir í fræðunum.
Staðan er þekkt fram í 20. leik! Pétur sem hafði fórnað skiptamun í byrjuninni hafði góðar praktískar bætur fyrir í formi biskupapars sem var mjög sterkt. Andstæðingurinn missti smátt og smátt tökin á stöðunni og Pétur myndaði sér hættulegan peðameirihluta á kóngsvæng sem Englendingurinn réð ekkert við. Vel útfærð skák hjá Pétri sem hefur tvo vinninga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Haukur hafði hvítt gegn Keshav Reyansh frá Möltu. Haukur drap á e5 gegn kóngs-indverskri vörn, skipti upp á drottningum og sýndi mátt sinn í stöðubaráttunni sem kom upp í kjölfarið. Áhugasamir ættu að skoða vel hvernig Haukur ferðaðist með riddarann sinn frá g1 og yfir á b3! Þokkalegi reiðtúrinn hjá því hrossi!
Markús Orri tefldi Catalan gegn Tommasi Boirdi frá San Marínó. Svartur tefldi vinsælt afbrigði með Bd6, Rc6 en þekkti ekki bestu leiðina gegn framhaldi Markúsar. Markús fékk mikið rými og þrengdi að svörtu mönnunum sem fundu aldrei sína fjöl. Öruggur sigur.
23. Hd8! og svartur er algjörlega varnarlaus.

3. umferð fer fram á morgun kl. 13:00 að íslenskum tíma.
Pétur Úlfar verður eini íslenski keppandinn í beinni útsendingu.

Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.
U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem
U14
Birkir Hallmundarson
U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir
U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson
U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason
U8
Helgi Fannar Óðinsson
Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):
|
Þriðjudagur
|
3. nóvember
|
13:00
|
Umferð 1
|
|
Miðvikudagur
|
4. nóvember
|
13:00
|
Umferð 2
|
|
Fimmtudagur
|
5. nóvember
|
13:00
|
Umferð 3
|
|
Föstudagur
|
6. nóvember
|
13:00
|
Umferð 4
|
|
Laugardagur
|
7. nóvember
|
13:00
|
Umferð 5
|
|
Sunnudagur
|
8. nóvember
|
Frídagur
|
|
|
Mánudagur
|
9. nóvember
|
13:00
|
Umferð 6
|
|
Þriðjudagur
|
10. nóvember
|
13:00
|
Umferð 7
|
|
Miðvikudagur
|
11. nóvember
|
13:00
|
Umferð 8
|
|
Fimmtudagur
|
12. nóvember
|
12:00
|
Umferð 9
|

















