Segja má að slæmi kaflinn hafi komið á versta tíma hjá stórmeistaranum Helga Áss Grétarssyni. Framan af móti steig Helgi varla feilspor og vann sex fyrstu skákir sínar. Í lokaumferðunum þremur var taflmennskan ekki jafnfætis teflmennskunni í fyrri hluta mótsins og aðeins hálfur vinningur kom í hús í lokaumferðunum þremur. Tap í dag gegn indverska reynsluboltanum Babu Lalit þýðir að Helgi endar í 4. sæti eftir að hafa allt að því átt sigurinn vísann á mótinu!

Helgi hafði hvítt og eins og svo oft fór hann ákveðnar eigin krókaleiðir í byrjunum. Hvíta staðan var í fínu lagi skv. tölvuforritum en staðan vandtefld þar sem hvítur hugði ekki nægjanlega vel að liðsskipan kóngsvængs síns. Helgi náði ekki að leysa það vandamál nægjanlega vel og sá indverski herti tökin á drottningarvæng og vann peð.

Helgi náði að berjast í bökkum og átti einhverja praktíska sénsa á að halda hróksendataflinu en sá indverski sýndi mjög góða tækni og innbyrti vinning í skákinni og þar með á mótinu líka!

Leiðinleg lokaniðurstaða og endar Helgi með 6,5 vinning af 8 og dettur úr efstu sætunum niður í 4. sætið. Sigurvegari varð eins og áður sagði indverskri stórmeistarinn Babu Lalit. Skemmtilegt var þó að fylgjast með baráttu Helga í toppbaráttunni og óhætt að hlakka til 2027 þar sem Helgi mun gera ýmsar atlögur á hinum og þessum mótum!

Um mótið:

Helgi er með 2405 Elo-stig og var fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann voru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).

Benidorm Chess Open fór fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar voru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og voru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið var FIDE-reiknað og gaf möguleika á alþjóðlegum áföngum.

Mótinu var skipt í tvo meginflokka. Open A var ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B var fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.

Helgi tefldi að sjálfsögðu í sterkari flokknum

Dagskrá mótsins var þétt:

  • 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
  • 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
  • 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
  • 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
  • 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
  • 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
  • 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
  • 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
  • 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn