Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í þriðju umferð í 50+ flokknum á Heimsmeistaramót öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu.  Andstæðingur hans, norskur alþjóðlegur meistari, ruggaði engum bátum og jafntefli niðurstaðan. Guðlaug Þorsteinsdóttir tapaði gegn indverskum WIM í beinni.

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði svart og gerði eiginlega eins og hann gat. Svarta staðan traust og á tíma örlítið frumkvæði á svart en sá norski leitaði mikið í uppskipti og tryggði jafnteflið.

Hannes kampakátur fyrir skák gærdagsins.

Hannes hefur 2,5 vinning eftir þetta jafntefli og er í 6.-19. sæti 124 keppenda.

Henrik við upphaf þriðju umferðar.

Henrik Danielsen vann sigur gegn Makedónanum Robert Veleski (2111) og hefur 2 vinninga og er í 20.-47. sæti.

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

Guðlaug brosmild við upphaf skákar í gær. Þyngra yfir Nonu.

Guðlaug mætti indverskri WIM Thipsay. Sú indverska hafði svart og náði undirtökunum snemma í miðtaflinu og herti tökin jafnt og þétt og hafði sigur á okkar konu. Hún hefur nú 2-0 geng íslenskum skákkonunum en hún vann Ólöfu Þráinsdóttur á Ólympíuskákmótinu 1984 í Salonikki!

Sigurlaug við upphaf umferðar í gær.

Sigurlaug laut í dúk gegn Sekhposjan (1943) frá Rússlandi.

Gauðlaug hefur 1,5 vinning og er í 12.-17. sæti 29 keppenda. Sigurlaug hefur 0,5 vinning.

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Pörun 4. umferðar:

Hannes, Henrik og Guðlaug verða öll í beinni útsendingu.

Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.

Tenglasafn

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn