Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði aftur jafntefli í fjórðu umferð í 50+ flokknum á Heimsmeistaramót öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu.  Andstæðingur hans var búlgarskaur stórmeistari. Guðlaug Þorsteinsdóttir náði góðum endurkomusigri í endatafli þar sem hún hafði verið peði undir.

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði hvítt en fékk lítið úr spænska leiknum. Á tímabili var svartur líklega kominn með örlítið betra tafl en fljótlega einfaldaðist taflið og upp kom jafntefli með mislitum biskupum

Hannes hefur 3 vinning eftir þetta jafntefli.

Henrik Danielsen gerði tiltölulega stutt jafntefli í sinni skák og hefur 2,5 vinninga.

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

Guðlaug mætti frá Búlgaríu. Eftir jafnt miðtafl gerði Guðlaug mistök og lenti í endatafli peði undir. Sú búlgarska lék þá illa af sér og Guðlaug náði að snúa taflinu sér í vil með snörpum taktískum aðgerðum.

Sigurlaug varð að sætta sig við tap gegn Martine Dubouis frá Mónakó.

Gauðlaug hefur 12,5 vinning og Sigurlaug hefur 0,5 vinning.

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Pörun 5. umferðar:

Hannes og Guðlaug verða í beinni útsendingu.

Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.

Tenglasafn

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn