Það var fín vinningasöfnun hjá íslenska hópnum í 4. umferð EM ungmenna í skák. Alls komu sjö vinningar í hús í þrettán skákum, sem er það besta til þessa.

Helgi Fannar, Guðrún Fanney, Mikael Bjarki og Markús Orri unnu sínar skákir. Harpa Hrafney gerði gott jafntefli gegn landsliðskonu frá Kósóvó. Róbert gerði einnig jafntefli, sem og Birkir og Dagur við heimamennina Iliopoulos og Kouvalakis.

Ingvar Þór, Björn Ívar og Helgi Fannar gleðjast yfir skák dagsins

Helgi Fannar var tilbúinn í fjögurra riddara tafl.


Andstæðingur hans lék hér illa af sér 8…a6? sem Helgi svaraði með 9.Bxf6 Dxf6?! 10.Rd5 De6 11.Bxc6 bxc6 12.Rxc7 og hvítur vinnur lið. Helgi tók sér góðan tíma í úrvinnsluna og voru úrslitin aldrei í hættu.

Karma lagði Osmolovskii að velli með mjög skynsamri taflmennsku. Upp kom lokaða afbrigði Sikileyjarvarnar og Karma hélt spennunni í stöðunni langt fram eftir miðtaflinu. Hann jók rýmið sitt og setti pressu á veikleikana í hvítu stöðunni. Að lokum þurfti eitthvað að láta undan:

22…Bxg2+ 23. Dxg2 exf4 24. Bxf4 Rxb3! og Karma vann peð og skákina í framhaldinu.

Guðrún Fanney hafði hvítt gegn georgísku landsliðskonunni WIM Mgeladze (2307). Upp kom katalónsk byrjun og Guðrún fékk góða stöðu og meira rými eftir byrjunina. Undir talsverðri pressu lék sú georgíska illa af sér með 23…f5? Í framhaldinu opnaðist svarta kóngsstaðan of mikið og Guðrún innbyrti vinninginn á hnitmiðaðan hátt.

Guðrún Fanney í skák dagsins

Mikael Bjarki hafði hvítt og vann mjög öruggan sigur í dag, í 22 leikjum, gegn Úkraínumanninum Savitsky. Svartur gerði sig sekan um slæm mistök með uppskiptum á g4 og sat eftir með biskupinn sinn innilokaðan eftir:

16. f5! og svartur náði ekki að halda stöðunni saman.

Markús Orri lenti í smá vandræðum í miðtaflinu í skák sinni.

Markús Orri fer yfir málin

En í flækjunum náði hann að snúa á andstæðing sinn hér með:

1.Hxe4!? Bxh3+! 2.Kxh3 dxe4 3.Hf6+ hér var 3…Kg7 sterkari en eftir 3…Kh7? 4.Bxe4 var svartur að velja á milli mátnets eða liðstaps.

Frá keppnissalnum. Dagur Sverrisson lengst til vinstri
Úrslit 4. umferðar

Guðrún Fanney er eini íslenski keppandinn sem verður í beinni á morgun, gegn erkikfjanda sínum Lala Huseynova.

Pörun 5. umferðar

Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar

Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.

U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson

U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem

U14

Birkir Hallmundarson

U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir

U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson

U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason

U8
Helgi Fannar Óðinsson

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Þriðjudagur
3. nóvember
13:00
Umferð 1
Miðvikudagur
4. nóvember
13:00
Umferð 2
Fimmtudagur
5. nóvember
13:00
Umferð 3
Föstudagur
6. nóvember
13:00
Umferð 4
Laugardagur
7. nóvember
13:00
Umferð 5
Sunnudagur
8. nóvember
Frídagur
Mánudagur
9. nóvember
13:00
Umferð 6
Þriðjudagur
10. nóvember
13:00
Umferð 7
Miðvikudagur
11. nóvember
13:00
Umferð 8
Fimmtudagur
12. nóvember
12:00
Umferð 9
- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn