Heimsmeistaramót öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu hélt áfram í dag eftir frídag í gær. Tefld var sjötta umferð og voru efstu borð í 50+ flokknum almenn friðsæl og mikið af jafnteflum. Þeir Hannes og Henrik gerðu báðir jafntefli í sínum skákum. Guðlaug tapaði í 65+ flokki kvenna en Sigurlaug náði einu sigurskák dagsins, lagði pólska WFM.
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði hvítt gegn rússneska stórmeistaranum Evgeny Vorobiov og upp kom sikileyjarvörn. Hannes vann drottningu en sá rússneski fékk fyrir hana hrók og mann. Staðan var mjög óræð á köflum og eftir kaup var samið þar sem svartur hafði tvo hróka fyrir drottninguna en á móti aðeins veikari kóng. Hannes líklegast ekki séð neitt gott plan í stöðunni og bauð jafntefli.
Hannes hefur 4,5 vinninga eftir þetta jafntefli.
Henrik Danielsen lenti í mikilli beyglu með svörtu gegn IM Zoran Arsovic. Vörnin var erfið an Henrik náði að halda jafnteflinu.
Henrik hefur 4 vinninga.
- GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.
Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug tapaði sinni skák gegn hinni rússnesku Bulanovu. Guðlaug var lengst af í erfiðri vörn en komst í endatafl sem líklegast á að haldast með bestu taflmennsku. Því miður náði sú rússneska að trikka Gullu í lokin.
Sigurlaug náði fínum sigri í umferðinni og færði sig ofar á töflunni.
Gauðlaug hefur 3 vinninga og Sigurlaug hefur 2,5 vinning.
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
- Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.
Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!
Úrslit 6. umferðar:

Pörun 7. umferðar:

Hannes, Henrik og Guðlaug verða í beinni útsendingu og teflt verður á hverjum degi til loka móts, frídagurinn að baki.
Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess

















