Sjöunda umferð Evrópumóts ungmenna skilaði ekki mörgum vinningum hjá íslenska hópnum, eða alls 3,5 vinningi í 13 skákum. Guðrún Fanney var í beinni útsendingu á efstu borðum og hafði teflt mjög góða skák sem tapaðist í tímahraki. Haukur tapaði sömuleiðis á efri borðunum í sínum flokki.
Róbert Heiðar, Dagur og Birkir unnu sínar skákir og Harpa Hrafney gerði jafntefli.

Róbert Heiðar átti frekar náðugan dag á skrifstofunni gegn Mamoulakis. Andstæðingurinn tók baneitrað peð á e4 alltof snemma í skákinni, var eftir á í liðsskipan og öll taktík gekk upp fyrir Róbert sem vann á sannfærandi hátt.

Dagur vann sömuleiðis á sannfærandi hátt gegn heimamanninum Thomopoulus. Andstæðingurinn gaf kost á tveimur mannsfórnum sem hröktu hvíta kónginn út á borðið þar sem hann stóð í skotlínunni. Auðveldur sigur.

Birkir náði loks í sigur í dag gegn heimamanninum Latos. Eftir vel heppnaða byrjun kom upp eftirfarandi staða:
Birkir var að vinna peð eftir stöðubaráttu skák með 35.Bxb5 en andstæðingur hans fór úr öskunni í eldinn með 35…Hxh2?? 36.Bf4 Hc2 37.Bd6 og hvítur vinnur mann.
Harpa Hrafney tefldi vandaða skák gegn Kubanovic frá Króatíu. Harpa fékk betra tafl eftir byrjunina og átti möguleika á að pressa aðeins en sú króatíska fann leið til að létta á stöðunni og jafntefli var samið eftir að staðan einfaldaðist. Það hefur verið stígandi í taflmennsku Hörpu á mótinu og mikil seigla og gæði í skákunum hennar.
Áttunda umferð mótsins fer fram á morgun, miðvikudag, kl. 13:00 að íslenskum tíma. Enginn íslenskur keppandi verður í beinni útsendingu. Guðrún Fanney er enn í námunda við toppinn og teflir á 11. borði. Dagur og Róbert mætast innbyrðis og sama gerist hjá Karma og Nökkva.
Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.
U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem
U14
Birkir Hallmundarson
U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir
U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson
U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason
U8
Helgi Fannar Óðinsson
Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):
|
Þriðjudagur
|
3. nóvember
|
13:00
|
Umferð 1
|
|
Miðvikudagur
|
4. nóvember
|
13:00
|
Umferð 2
|
|
Fimmtudagur
|
5. nóvember
|
13:00
|
Umferð 3
|
|
Föstudagur
|
6. nóvember
|
13:00
|
Umferð 4
|
|
Laugardagur
|
7. nóvember
|
13:00
|
Umferð 5
|
|
Sunnudagur
|
8. nóvember
|
Frídagur
|
|
|
Mánudagur
|
9. nóvember
|
13:00
|
Umferð 6
|
|
Þriðjudagur
|
10. nóvember
|
13:00
|
Umferð 7
|
|
Miðvikudagur
|
11. nóvember
|
13:00
|
Umferð 8
|
|
Fimmtudagur
|
12. nóvember
|
12:00
|
Umferð 9
|




















