Taflfélag Garðabæjar

Undanfarnar tvær vikur hefur skákveisla farið fram í Miðgarði í Garðabæ. Fyrri helgina fór  Skákþing Garðabæjar fram og seinni helgina hraðskákmót Garðabæjar.

Á Skákþingi Garðabæjar voru 18 keppendur skráðir til leiks og tefldu þeir 4 atskákir á föstudegi, tvær kappskákir á laugardegi og, að lokum, eina kappskák á sunnudegi.

Snemma varð ljóst að mikið þyrfti til að stöðva stigahæsta keppanda mótsins, alþjóðlega meistarann Björn Þorfinnsson. Fyrsti og eini keppandinn til að stöðva Björn var hinn bráðefnilegi Ahn Hai Tran í 5. umferð. Skákin endaði í mislitu biskupaendatafli þar sem Björn lagðist af fullum þunga á Ahn (hans orð!) og fórnaði m.a. biskupnum til þess að reyna að brjóta unga andstæðing sinn, en Ahn gerði brotnaði ekki og hélt jöfnu. Þessi hálfi punktur var sá eini sem Björn tapaði og hann var því sigurvegari skákþingsins og hlýtur titilinn Skákmeistari Garðabæjar 2026.

TR-ingarnir Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson gerðu heiðarlega tilraun til þess að halda í við Björn eftir að hafa báðir tapað fyrir honum. Daði vann Gauta og gat því samið taktískt jafntefli í lokaumferðinni gegn Jóhanni Ragnarssyni sem tryggði Daða 2. sæti og Jóhanni titilinn Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar.

Bræðurnir Örvar og Nökkvi Brynjarssynir hlutu flokkaverðlaun og Emilía Sigurðardóttir hlaut kvennaverðlaunin.

Úrslit mótsins í heild

Á mótinu voru kappskákirnar með styttra móti, 60 mínútur + 30 sekúndur per leik og mæltist það mjög vel fyrir hjá keppendum.

Hraðskákmót Garðabæjar fór fram sunnudaginn 9. nóvember og tóku 29 keppendur þátt. Eins og í skákþinginu var það stigahæsti keppandinn sem sigraði, en það var Arnar Milutin Heiðarsson. Arnar vann 8 af 9 skákum, tapaði aðeins gegn Gauta Páli Jónssyni. Einnig með 8 vinninga en lægri á stigum var Marinko Gavran. Stefán Steingrímur Bergsson var í þriðja sæti með 7 vinninga.

 

 

Myndir Tómasar Tandra frá hraðskákmótinu

 

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn