Sjöunda umferð Evrópumóts ungmenna skilaði ekki mörgum vinningum hjá íslenska hópnum, eða alls 3,5 vinningi í 13 skákum. Guðrún Fanney var í beinni útsendingu á efstu borðum og hafði teflt mjög góða skák sem tapaðist í tímahraki. Haukur tapaði sömuleiðis á efri borðunum í sínum flokki.

Róbert Heiðar, Dagur og Birkir unnu sínar skákir og Harpa Hrafney gerði jafntefli.

Róbert sáttur með dagsverkið

Róbert Heiðar átti frekar náðugan dag á skrifstofunni gegn Mamoulakis. Andstæðingurinn tók baneitrað peð á e4 alltof snemma í skákinni, var eftir á í liðsskipan og öll taktík gekk upp fyrir Róbert sem vann á sannfærandi hátt.

Dagur einbeittur – Mynd: mótshaldarar

Dagur vann sömuleiðis á sannfærandi hátt gegn heimamanninum Thomopoulus. Andstæðingurinn gaf kost á tveimur mannsfórnum sem hröktu hvíta kónginn út á borðið þar sem hann stóð í skotlínunni. Auðveldur sigur.

Birkir, lengst til hægri, fagnar 11 afmælisdegi Péturs Úlfars

Birkir náði loks í sigur í dag gegn heimamanninum Latos. Eftir vel heppnaða byrjun kom upp eftirfarandi staða:

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn