Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótið hefst kl 19:00 í kvöld í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Það eru Sel Hótel Mývatn og Mývatn Öl sem standa að mótinu ásamt Goðanum. Mótið er sett upp á sama hátt og 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í mars árið 2025 sem þóttist heppnast vel og því er nú leikurinn endurtekinn. Sel Hótel Mývatnog Mývatn Öl er aðal styrktaraðili mótsins og heitir því mótið eftir því. Skráning í mótið var opnuð 1. mars sl. og eru 48 keppendur skráðir til leiks. Skráningu lokar kl. 13:00 í dag. Parað verður í 1. umferð kl 16:00 í dag.

Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results
Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.
Gistimöguleikar.
Sel Hótel er orðið fullbókað dagana sem mótið fer fram og sömuleiðis Gistiheimilið á Skútustöðum. En það er nægt framboð á gistingu í Mývatnssveit sem hægt að skoða ma. á visitmyvatn.is eða hér.
Skrá sig í mótið Athugið að staðfesting á skráningu í mótið er gerð þegar þátttökugjald hefur verið greitt með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan
Greiðslutengill, Fullt gjald 10.000 ISK
Greiðslutengill fyrir 18 ára og yngri. 7000 ISK.
Mótshaldarar bjóða upp á rútuferð fram og til baka frá BSÍ – Skjólbrekka – BSÍ. Hér er hægt að lesa meira um þá ferð og skrá sig í ferðina hér Skráningu í rútuferðina loka á hádegi miðvikudaginn 18. nóvember.
Allar nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalsteinsson í síma 8213187 eða lyngbrekku@simnet.is
















