Fyrsta umferð á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu sem haldið er í Skjólbrekku í Mývatnssveit var tefld í kvöld. Öll úrslit reyndust eftir bókinni svokölluðu, þeir stigahærri unnu allir skákirnar!
Mótið hófst á því að Katrín Sigurjónsdóttir sveitastjóri í Þingeyjarsveit setti mótið með því að leika fyrsta leiknum fyrir stórmeistarann Stuart Conquest gegn Goðamanninum Smára Sigurðssyni.
Eins og áður sagði er skemmst frá því að segja að allir stigahærri skákmenn unnu sínar skákir og það meira og minna án vandkvæða. Ef tekið er mið af tölvumati var það helst Karl Steingrímsson sem stóð best.
Hér er 16…f6! jafnvel örlítið betra á svart í tölvunum en 16…Rf6? gaf Hilmi í staðinn unnið tafl.
Björn Þorfinnsson fórnaði manni en hafði stöðuna að því er virtist undir fullri stjórn.
Hinn ungi Robin Peter Erlendsson Weinert fékk tvo sénsa til að gera kæruleysislega úrvinnslu Gauta Páls erfiða!
30…Hxe4! gerir hvítum mjög erfitt fyrir í þessari stöðu. T.d. 31.Rd7 He1+ 32.Kf2 He2+ og ef 33.Kf3 kemur 33…Rd5 og hvítur þarf að passa sig! T.d. er gangandi þráskák á einum stað. Robin lék 30…Bxe4 þess í stað en eftir 31.He8? fékk hann annan séns þar sem nú er 31…Rd5! mjög sterkur. Skák í borði og veikleiki g2 peðsins gefur svörtum hættulegt frumkvæði. 31…Rf5? kom í staðinn og Gauti náði vopnum sínum aftur.
Markús Orri kláraði pent gegn Inga Hafliða
21…e3! 22.Dxf5 exf2+ og Ingi gafst upp.
Stórmeistararnir fimm áttu allir frekar náðugan dag, þar á meðal Vignir Vatnar sem virkaði þó nokkuð dasaður eftir ferðalag dagsins líkt og andstæðingur hans, Hrund Hauksdóttir.

Úrslit umferðarinnar:

Pörun næstu umferðar:

Mikið um skemmtilegar viðureignir strax í annarri umferð og ljóst að stigahæstu menn þurfa að hafa verulega fyrir hlutunum í 2. umferðinni á morgun!
1. umferð skákir:
Keppendalisti:

Upplýsingar um mótið:
Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results
Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.

















