Rúnar að tafli á Akureyri. Mynd: Heimasíða SA.

Hraðskákmót Akureyrar fór fram þann 17. febrúar. Góðmennt var á mótinu, en sjö áhugasamir keppendur voru tilbúnir til að berjast um þennan merka titil. Sigurður Arnarson tók snemma forystu á mótinu og hélt henni þar til í næstsíðustu umferð, þegar hann tapaði óvænt fyrir alþjóðlegum meistara. Það gat Rúnar Sigurpálsson nýtt sér, en Rúnar hefur líklega unnið þetta m+ot oftar en nokkur annar. Hann hreppti því efsta sætið enn einu sinni, þrátt fyrir slaka byrjun. Rúnar hafði aðeins 1,5 vinning eftir 4 fystu skákirnar, en vann svo 10 skákir í röð og það dugði, sem áður sagði. Um mönnur úrslit vísast til töflu:

nafn stig 1 2 3 4 5 6 7 vinn
1 FM Sigurpalsson Runar 2249 * * 0 1 ½ 1 0 1 1 1 1 1 1 1
2 Arnarson Sigurdur 2056 1 0 * * 1 0 1 0 1 1 1 1 1 1 9
3 Thorhallsson Simon 1874 ½ 0 0 1 * * 0 1 1 1 1 1 1 1
4 IM Karason Askell O 2131 1 0 0 1 1 0 * * 1 0 1 1 1 1 8
5 Eiriksson Sigurdur 1974 0 0 0 0 0 0 0 1 * * 1 1 1 1 5
6 Thorarensen Robert 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 * * 1 1 2
7 Valdemarsson Viktor 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 * * 0

 

Næstu stórtíðindi í mótamálum felast í fjórðum loku TM-mótaraðarinnar á fimmtudagsinn kl. 20.00. Þó verður sýnu stærri atburður þar á undan, en kl. 17:45 setjast þeir Rúnar Sigurpálsson (sem hefur titil að verja) og Símon Þórhallsson að tafli í úrslitaeinvígi sínu um Akureyrarmeistartitilinn í skák 2019. Munu þeir tefla tvær atskákir (25+5) um þennan merka titil og sk. hamfaraskák til úrslita ef nauðsyn krefur. Áhorfendur eru hvattir til að mæta tímanlega – mótaröðin hefst að einvíginu loknu.

Af heimasíðu SA

 

- Auglýsing -