Mótaröðinni um Taflkóng Friðriks Ólafssonar, sem nú var haldin í 8. sinn er lokið. Keppnin hefur farið fram síðustu fjögur mánudagskvöld vestur í KR og var þátttaka góð. Þrjú bestu mót hvers keppanda telja til stiga og átta efstu sætin gefa stig (10-8-6-5-4-3-2-1) líkt og í Grand Prix keppninni. Upphaflega var efnt til þessarar keppni á vegum Gallerý Skákar í tilefni af fyrsta Skákdaginum og afmæli meistarans 2012, sem síðan hefur haldist.
Með bestan samanlagðan árangur og sterkastur að jafnaði var hinn vaski víkingur Gunnar Freyr Rúnarsson og var þetta í annað sinn á fjórum árum sem hann vinnur keppnina. Hann vann tvö mót og varð þriðji í einu sem gaf honum 26 stig og þar með sigurinn. Annar hlutskarpastur varð Gunnar Skarphéðinsson, sigurvegarinn frá 2012, með 18 stig, og í þriðja sæti Kristján Halldórsson með 16. Tveir aðrir Gunnarar hafa fengið nafn sitt skráð gullnu letri á gripinn, þeir Gunnar Birgisson 2013 og Gunnar Kr. Gunnarsson 2014. Auk þeirra prýða nöfn Ólafs B. Þórssonar 2016, Guðfinns R. Kjartanssonar 2017 og Arnars Leós Jóhannsonar 2018 þennan sögulega verðlauna- og farandgrip.
Úrslit einstakra móta voru þessi:
28. janúar:
1. Gunnar Fr. Rúnarson 8.5 /9
2. Kristján Halldórsson 6.5v
3. Gunnar Skarphéðinsson 6.0v
4. febrúar:
1. Kristinn Bjarnason 7.5 /9
2. Björgvin Í. Scram 7.0v
3. Gunnar Fr. Rúnarsson 6.5v
4. Kristján Halldórsson 6.0v
11. febrúar
1. Gunnar Fr. Rúnarsson 7.5 /9
2. Guðf. R. Kjartansson 6.5v
3. Björgvin Í. Scram 6.5v
4. Gunnar Skarphéðinsson 6.0v
18. febrúar
1. Óskar Long Einarsson 7.0 /9
2. Ellert Brendssen 7.0v
3. Gunnar Skarphéðinsson 6.5v
4. Gunnar Freyr Rúnarsson 6.5v
5. Gunnar Kr. Gunnarsson 6.0 v.
Þátttakendur i lokamótinu voru 23 talsins en nokkuð færri í hinum.
ESE














