Íslandsmótið í atskák – Atskákmót Reykjavíkur 2025

    0
    315
    Hvenær:
    15. desember, 2025 @ 19:00 – 16. desember, 2025 @ 22:00
    2025-12-15T19:00:00-01:00
    2025-12-16T22:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    3000
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Íslandsmótið í atskák - Atskákmót Reykjavíkur 2025 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Atskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsakynum TR, Faxafeni 12, dagana 15.-16. desember næstkomandi. Tefldar verða níu skákir með tímamörkunum 15+5 (15 mínútur á skákina að viðbættum fimm sekúndum á hvern leik) á tveimur kvöldum. Fyrstu fimm umferðirnar verða mánudagskvöldið 4. desember klukkan 19:30 og síðustu fjórar verða þriðjudagskvöldið 5. desember klukkan 19:30. Seinni hluti mótsins, þriðjudagskvöldið, kemur í stað venjulegs Þriðjudagsmóts. Atskákmót Reykjavíkur var lengst af haldið af Skákfélaginu Helli, síðar Huginn, en síðan 2019 hefur TR séð um mótahaldið. Mótið var til að byrja með haldið af TR, en það var haldið fyrst árið 1992. Mótið er öllum opið. Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Aleksandr Domalchuk-Jonasson. Atskákmeistarar Reykjavíkur frá upphafi.

    SKRÁNINGARFORM (Birt þegar nær dregur)

    Þegar skráðir keppendur

    Þáttökugjöld:

    Fullorðnir: 3000 kr. 17 ára og yngri: 1500 kr. Stórmeistarar borga ekki þáttökugjöld.

    Verðlaun:

    1. 30.000.-
    2. 20.000.-
    3. 10.000.-

    - Auglýsing -