
Jólapakkaskákmót Taflfélags Garðabæjar verður sunndaginn 20. desember næstkomandi í Miðgarði í Garðabæ. Í fyrra voru yngri flokkar fyrir hádegi en eldri eftir hádegi. Skýrist þegar nær dregur. Mótið í ár er haldið með stuðningi Rótaryklúbbsins Hof í Garðabæ.
Amk. 3 jólapakkar verða í verðlaun fyrir bæði stráka og stelpur í hverjum flokki auk amk. 3 happdrættisvinninga og er reiknað með að keppt verði í allt að 6 aldursflokkum auk peðaskákar fyrir þau yngstu. Allir keppendur fá glaðning að móti loknu að venju.
Tímamörk 7 mínútur á skák. Reiknað er með 5 umferðum í hverjum flokki að því gefnu að hver flokkur sé ekki stærri en 32 keppendur.
- A flokkur börn og unglingar fædd 2010 til 2012.
- B flokkur börn fædd 2013 til 2014
- C flokkur börn fædd 2015 til 2016
- D flokkur börn fædd 2017.
- E flokkur börn fædd 2018
- F flokkur börn fædd 2019 og yngri
- Peðaskák er svo tilvalin fyrir börn sem kunna ekki að máta.
Nánari upplýsingar í með því að senda póst á tg@tafl.is
Mótsstaður: Miðgarður, fjölnota íþróttahús, Vetrarmýri 18, Garðabæ
Skráning opnar síðar.











