Skákmót Laugardalslaugar

    0
    492
    Hvenær:
    29. júní, 2024 allan daginn
    2024-06-29T00:00:00+00:00
    2024-06-30T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Laugardalslaug
    Sundlaugavegur 105
    105 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1500 ISK
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Skákmót Laugardalslaugar @ Laugardalslaug | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Menningarfélagið Miðbæjarskák heldur nú fimmta árið í röð Skákmót Laugardalslaugar. Mótið verður haldið laugardaginn 29. júní klukkan 13. Mótið hefur verið vel sótt undanfarin fjögur ár. Sigurvegarar fyrri ára:

    2020: Jón Viktor Gunnarsson

    2021: Vignir Vatnar Stefánsson

    2022: Davíð Kjartansson

    2023: Andrey Prudnikov

    Mótið verður haldið á bökkum laugarinnar og uppi á þaki fyrir utan gömlu útiklefana. Þáttaka miðar við 40 manns í mesta lagi og lýkur skráningu náist sá fjöldi. Mótið er öllum opið. Taflið hefst stundvíslega klukkan 13, og tefldar verða 9. hraðskákir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þátttökugjald er 1500 krónur (500kr. fyrir 17 ára og yngri) sem greiðist með reiðufé eða korti, hjá skákstjóra. Boðið verður upp á kaffi meðfram mótinu og fá þáttakendur frítt í sund eftir mótið. Þáttakendur mæti tímanlega í afgreiðslu þar sem starfsfólk laugarinnar vísar þeim stystu leið að mótsstað.

    Veitt verða verðlaun í formi skipta í sund, 20 skipti í fyrstu verðlaun og 10 skipti í önnur og þriðju verðlaun. Sundmiðarnir gilda í allar laugar Reykjavíkurborgar. Veitt verða verðlaun fyrir efsta ungmennið (grunnskólaaldur), gjafabréf í Pylsuvagninn Laugardal. Einnig verður einn heppinn keppandi dreginn og fær líka gjafabréf í pylsuvagninn.

    Miðbæjarskák þakkar Laugardalslaug kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár!

    - Auglýsing -