Skákmót Laugardalslaugar

    0
    467
    Sól skein! Fremst til vinstri tefla Iðunn og Gauti. Fremst í miðju tefla Theodór og Kristján. Fremst til hægr tefla Arnljótur og Arnar.
    Hvenær:
    6. júlí, 2025 @ 13:00 – 16:00
    2025-07-06T13:00:00+00:00
    2025-07-06T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Laugardalslaug
    Sundlaugavegur
    Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1500 ISK
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Skákmót Laugardalslaugar @ Laugardalslaug | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Menningarfélagið Miðbæjarskák heldur nú sjötta árið í röð Skákmót Laugardalslaugar, sunnudaginn 6. júlí klukkan 13:00. Mótið hefur verið vel sótt undanfarin ár. Sigurvegarar fyrri ára og hlekkir á chess-results:

    2020: Jón Viktor Gunnarsson

    2021: Vignir Vatnar Stefánsson

    2022: Davíð Kjartansson

    2023: Andrey Prudnikov

    2024: Magnús Pálmi Örnólfsson

    Mótið verður haldið á bökkum laugarinnar og uppi á þaki fyrir utan gömlu útiklefana. Mótið er öllum opið. Taflið hefst stundvíslega klukkan 13, og tefldar verða sjö hraðskákir með tímamörkunum 4+3. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þátttökugjald er 1500 krónur (500kr. fyrir 17 ára og yngri) sem greiðist með reiðufé eða korti, hjá skákstjóra. Boðið verður upp á kaffi meðfram mótinu og fá þátttakendur frítt í sund eftir mótið. Þáttakendur mæti tímanlega í afgreiðslu þar sem starfsfólk laugarinnar vísar þeim stystu leið að mótsstað.

    Veitt verða verðlaun í formi skipta í sund sem gilda í allar laugar Reykjavíkurborgar. 20 skipti í fyrstu verðlaun, 10 skipti í 2. verðlaun og 10. skipti í 3. verðlaun. Veitt verða verðlaun fyrir efsta ungmennið (grunnskólaaldur), gjafabréf í Pylsuvagninn Laugardal. Einnig verður einn heppinn keppandi dreginn og fær líka gjafabréf í Pylsuvagninn.

    Miðbæjarskák þakkar Laugardalslaug kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár!

    Skráningu lýkur sunnudagsmorguninn 6. júlí klukkan 10:00 – þetta er til að mótshaldarar viti hversu mörg skáksett, klukkur og borð þarf að að koma með. Vinsamlegast virðið þetta, ekki verður tekið við skráningum á staðnum. 

    Skráningarform 

    Þegar skráðir keppendur  

    - Auglýsing -