Suðurlandsmót Skákskólans – Júní 2025

    0
    569
    Hvenær:
    8. júní, 2025 @ 16:00 – 18:15
    2025-06-08T16:00:00+00:00
    2025-06-08T18:15:00+00:00
    Hvar:
    Borg í Grímsnesi
    805 Borg
    Ísland
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Suðurlandsmót Skákskólans - Júní 2025 @ Borg í Grímsnesi | Borg | Grímsnes- og Grafningshreppur | Ísland

    Suðurlandsmót Skákskólans – Júní 2025, verður haldið í félagsheimilinu Borg, Grímsnesi, sunnudaginn 8. júní næstkomandi klukkan 16:00. 

    Klukkan 15:00 lýkur Suðurlandsnámskeiði Skákskólans en skráning í það er í fullum gangi.

    Mótið er opið öllum og eru sunnlenskir skákmenn hvattir til að fjölmenna.

    Einnig gæti þetta verið hinn fínasti sunnudagsbíltúr frá Höfuðborgarsvæðinu. Frá Borg er stutt á ýmsa skemmtilega staði. Sólheima, Reykholt (þar eru t.d Friðheimar), Flúðir, Laugarvatn, Kerið, Laugarrás, Skálholt og svo mætti lengi telja. Einnig má nefna að á Borg er sundlaug.

    Tefldar verðar sjö umferðir með tímamörkunum 5+3.Gera má ráð fyrir að mótið standi frá 16:00-18:15.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu 3 sætin í mótinu og efstu þrjú ungmennin frá Suðurlandi.

    Ókeypis er fyrir þátttakendur í Suðurlandsmótinu en kr. 2000 fyrir aðra.

    Skráningarform

    Þegar skráðir keppendur

    - Auglýsing -