Meistaramót Skákskóla Íslands 2020 fer fram í Viðey, 5. og 6. september nk. Mótið er opið öllum 15 ára og yngri.
Skráningarfrestur er til kl. 20 í kvöld. Eftir það verður skráningarforminu lokað.
Skráning fer fram á gula kassanum á skak.is.
Keppnisskilmálar og skipulag:
*Þátttökurétt hafa öll börn og unglingar fædd 2005 og síðar. Keppt er í einum flokki. *Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu – Chess-results.
*Keppnisdagar eru tveir, 5. september og 6. september.
*Tímamörk eru 15 10.
*Eftir fyrstu fimm umferðirnar verður NIÐURSKURÐUR.
*Til þess að komast í gegnum niðurskurðinn þurfa keppendur að hljóta 2½ vinning eða meira. Þeir sem ekki ná þeirri vinningatölu hætta keppni – Hinir halda áfram.
*Lagt er að stað kl. 11:15 frá Skarfabakka. Mæting kl. 11
Keppt um sæti á EM ungmenna í netskák:
Á þessu móti verður keppt um átta sæti á EM ungmenna í netskák sem fram fer dagana 18. – 20. september nk.
Keppt er um:
- Tvö sæti í Opnum flokki u 14 ára
- Tvö sæti í Opnum flokki u 12 ára.
- Tvö sæti í Stúlknaflokki u 14 ára.
- Tvö sæti í Stúlknaflokki u 12 ára.
Sá stigahæsti (virk FIDE-kappskákstig) fær beinan keppnisrétt á EM.
Upplýsingar um Evrópumótið má sjá hér.
Dagskrá Meistaramóts Skákskóla Íslands mótsins verður með eftirfarandi hætti:
Fyrri keppnisdagur:
- umferð. Laugardagur 5. september kl. 12. – 12. 45.
- umferð: Laugardagur 5. september kl. 13 – 13.45.12.15 – 12.45.
- umferð: Laugardagur 5. september kl. 14 – 14.45.
- umferð: Laugardagur 5. septemberkl. 15 – 15.45.
- umferð: laugardagur 5. september kl. 16 – 16.45.
Seinni keppnisdagur:
- umferð: Sunnudagur 6. september kl. 12. -12.45.
- umferð: Sunnudagur 6. september kl. 13. – 13.45
- umferð: Sunnudagur 6. september kl. 14. – 14.45.
- umferð: Sunnudagur 6. september kl. 15 – 15.45.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að gera breytingar á dagskrá.
Skráning
Skráningarfrestur er til kl. 20 á fimmtudagskvöldið.
Skráning fer fram á gula kassanum á skak.is.
Verðlaun:
- verðlaun: ferðavinningur að verðmæti kr. 50 þús.
- verðlaun: ferðavinningur kr. 40 þús.
Besti árangur stúlkna ferðavinningur að verðmæti kr. 40 þús.
Verðlaun keppenda sem eru undir 1200 elo-stig eða stigalausir:
- verðlaun: Ferðavinningur kr. 40 þús.
- verðlaun: Vönduð skákbók og landsliðstreyja HENSON.
- verðlaun: Landsliðstreyja HENSON.
Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum í báðum flokkum
Mótið er haldið í samvinnu við Skáksamband Íslands, Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Breiðabliks.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Nánar um mótið:
- Það er frítt í bátinn fyrir þátttakendur í mótinu.
- Það eru vinsamleg tilmæli til foreldra og forráðamanna, sem sem vilja fylgja börnum sínum í bátinn, að vera með andlitsgrímu á ferðinni yfir sem tekur um 5 mínútur. Samkvæmt reglugerð, sem ferjuaðilinn Elding fylgir, er það þó ekki skylda.
- Mótið fer fram á efri hæð í Viðeyjarstofu. *
- Foreldrum og forráðmönnum er ekki heimill aðgangur að skáksal á efri hæðinni.
- Það er góð aðstaða á neðri hæðinni. Allar venjulegar varúðarreglur vegna Covid í gildi þar.
- Hægt er að kaupa veitingar í Viðeyjarstofu.
- Þátttakendum í mótinu er heimilt að taka með sér nesti.





